Persónugerir vörumerkið
Tekur fyrirtækið þitt úr því að vera „bara logo“ yfir í skemmtilegt og persónulegt vörumerki sem fólk man eftir og tengir við.
Sjá verkefnin
Vörumerki sem hafa unnið með okkur
Brot af því sem við höfum gert fyrir íslensk vörumerki. Smelltu á hvaða myndband sem er til að spila það.

KEF Airport22K970294
Askja35.3K1.4K423
Orkusalan9.3K5685
Dekkjahöllin51.7K3.7K7.2K
Askja33K80071
Nathan10K404429
Verkfærasalan13K51037
Byggiðn31K1.4K269
Garðfix25.3K56546
Myntkaup13.1K30934
Secret Lagoon4K746
Apótekarinn10.5K23252TikTok og Reels snúast ekki bara um áhorf. Þau breyta því hvernig fólk sér fyrirtækið þitt, og hvort það treystir þér nóg til að versla.
Tekur fyrirtækið þitt úr því að vera „bara logo“ yfir í skemmtilegt og persónulegt vörumerki sem fólk man eftir og tengir við.

Eitt myndband getur náð til tugþúsunda á einum sólarhring. Algrímið dreifir góðu efni langt út fyrir fylgjendahópinn þinn.
Fólk kaupir af fólki sem það treystir. Þegar fólk sér andlitin og söguna á bak við fyrirtækið myndast raunveruleg tengsl.
Meira áhorf þýðir fleiri heimsóknir, fyrirspurnir og sölur. Hágæða efni sem vinnur fyrir þig allan sólarhringinn.
Þrír mánaðarlegir pakkar, frá 360.000 kr á mánuði. Sendu fyrirspurn og við förum yfir hvor hentar þér og hjálpum þér af stað.
Góð leið til að byrja. Stöðug og sterk nærvera á samfélagsmiðlum.
Þetta er málið. Mesta virðið og sá pakki sem skilar flestum viðskiptavinum bestum árangri.
Fyrir vörumerki sem fara alla leið. Mesta efnið, forgangur og náin stefnumótun.
Loki er sérhannaða kerfið okkar hjá Snap Media. Samþykktu myndbönd, fylgstu með árangri og haltu öllu á einum stað.
| Tímabil | Færslur | Reach | Áhorf | Eng. |
|---|---|---|---|---|
| jún. 2026 | 6 | 33K | 74K | 8,4% |
| maí 2026 | 5 | 27K | 61K | 7,6% |
| apr. 2026 | 4 | 22K | 48K | 6,9% |
Stutt „talandi við myndavél" myndband þar sem starfsmaður fer yfir þrjú einföld ráð til að spara rafmagn í vetur.
„Day in the life" klippt hratt, sýnir stemninguna og gerir vörumerkið mannlegt.
Takk fyrir hlý orð. Þau þýða meira en þið haldið.
Allt sem þau sögðu stóðst og ferlið var mjög skýrt. Á skömmum tíma var Myntkaup komið með alvöru „presence“ á TikTok. Mælum hiklaust með Snap Media.
Við hjá Opus Futura fengum Snap Media til að blása lífi í TikTok reikninginn okkar. Árangurinn er frábær og hugmyndavinnan mjög fagleg. Við munum klárlega vinna áfram með þeim, þau vita hvað þau syngja.
Án efa með sterkari auglýsingaaðferðum sem við höfum notað. Í óendanlegum sjó af stuttmyndböndum nær Snap Media að koma okkar fyrirtæki á framfæri. Mæli hiklaust með.

Allt byrjaði með unglingi í skóla sem birti TikTok myndbönd eins og hver annar, klippt í gömlum Samsung síma. Myndbönd úr tölvuleik rötuðu í milljónir áhorfa, yfir 10 milljónir samtals. Þar kviknaði ástríðan fyrir klippingu.
Fyrsta myndavélin keypt af vini, og klipping og kvikmyndataka sameinuðust. Fyrstu verkefnin urðu til fyrir lítil fyrirtæki í kringum okkur. Borgað lítið sem ekkert, en hér small allt saman.
Starf hjá markaðsstofu sem framleiddi TikTok efni fyrir stór íslensk fyrirtæki. Þar kom reynslan: klipping, kvikmyndataka og að vinna með stærstu vörumerkjunum. Svo var stökkið tekið og Snap Media varð til.
Sjö fastir viðskiptavinir og við erum rétt að byrja. Markmiðið er skýrt: að verða stærsta efnisfyrirtæki landsins og byggja upp stórt teymi.
Segðu okkur frá vörumerkinu þínu og markmiðunum.
Eða sendu okkur línu beint á snap@snapmedia.is